Innskot

Martröðin  um að vera nakin í skólanum varð að raunveruleika í dag nema hvað ég var ekki nakin heldur.......gubbaði ég Í TÍMA. Smart, finnst ykkur ekki. Ég ákvað því af gefnu tilefni að gefa mér nikknafnið; Mrs. Pjúkí.

Vóh,þetta er svo vandræðalegt að ég veit ekki alveg hvernig ég átti að haga mér. Sem betur fer hafði ég ekki gúffað í mig egg og beikoni í morgunmat þannig það var bara eins og ég hefði helt vatni á gólfið....je ræt! Kennarinn benti mér vinsamlega á að kannski væri góð hugmynd að fara heim sem ég og gerði og verð að viðurkenna að ég get ekki alveg treyst maganum á mér eins......en það er þó allavega klósett í byggingunni.


Bloggfærslur 25. mars 2008

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband