Sumarhelgarnar

Ég hugsa að meiri hluti ungmenna á Íslandi auki drykkju sína um helming frá maí og fram í ágúst. Löngunin í bjór með sólina á hnakkan er oftar til staðar heldur en þegar regnið lemur gluggana og tréin liggja í götunni. 

Við Hans heiðruðum nýja uppáhaldsbarinn minn Qbar með nærveru okkar föstudaginn og laugardaginn. Við kynntumst fullt af nýju og skemmtilegu fólki; rosalega fallegum Frakka, krúttlegum barþjón og mann sem vann mig í danskeppni.....ástæðan er sú að ég gat ekki tekið tvistið því ég hló svo mikið. 

Við Hans komust líka að því að við erum án efa besta dansdúó á stórReykjarvíkursvæðinu. Við stálum senunni svo svakalega á dansgólfinu að það hefði mátt ætla að þarna væru mættir dansarar úr So you think you can dance.

Vá hvað ég á eftir að sakna Hansa... 


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 identicon

þú skrifar svolítið um mig eins og ég sé dauinn. af því tilefni vill ég taka það fram að sögusagnir um dauða minn eru stórlega ýktar.

ps. við vorum best. langbest.

hans orri (IP-tala skráð) 10.7.2007 kl. 00:02

2 identicon

þetta átti auðvitað að vera dáinn en ekki dauinn....

hans orri (IP-tala skráð) 10.7.2007 kl. 00:03

3 identicon

Þú dáinn.....ef svo er þá deeem hvað þú ert sexí afturganga!

inam (IP-tala skráð) 10.7.2007 kl. 08:42

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband