Update

Í morgun fór mamma á flugvöllinn að reyna við að komast heim. Eins og það er fínt fyrir budduna að ferðast standby þá er það ansi stressandi. Kemur í ljós hvort hún komist með eða ekki. Ég verð á lestarstöðinni í nótt því stelpurnar eru á ferðalagi.....djók. 

Herbergið mitt er glæsó; stórt rúm, skápurx2, skrifborð, lampi og risastór gluggi. Íbúðin er eins og fín og á verður kosið, stór og björt og stelpurnar eru frábærar líka (það litla sem ég hef talað við þær). Önnur er að byrja á fjórða ári í dýralækninum og hin er að byrja á öðru ári í læknisfræði. Þær hafa svona aðeins frætt mig um hjálpsemi og þjónustulund ungverja sem er....engin. Maður er sendur í 18 raðir áður en maður kemst að þeirri réttu og þá er oft svarað "Nem értem" sem þýðir "skil ekki". En þar sem ég er svo þolinmóð og óskapbráð held ég að ég eigi eftir að tækla þetta á hin besta máta. 

Eins og er sit ég á kaffihúsi að drekka einn versta cappocino sem ég hef á ævi minni smakkað en ég þræla honum ofaní mig eins og vel uppalin stúlka.

Annars líst mér vel á þetta, er að fara að hitta Kötlu á íslensku í kvöld og svo byrjar ballið á fimmtudaginn....ííííha


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 identicon

Vildi bara segja gangi þér vel. Þú getur allt sem þú vilt. Og endilega kíktu á síðuna okkar Hrundar og Rakelar: litlahusid.blog.is

Knús

Díana (IP-tala skráð) 27.8.2007 kl. 13:14

2 identicon

Hæ skvísa en hvað það er gott að allt gangi vel sem komið er ;) Vonandi hefuru það gott þarna úti, þú rokkar þetta útlendingapakk í kaf :)

Tinna Huld (IP-tala skráð) 27.8.2007 kl. 20:47

3 identicon

Viltu senda mér póst svo ég fái netfangið þitt er bara með það í vinnunni. Net: thorakjartans@gmail.com

Thora Kjartansdóttir (IP-tala skráð) 28.8.2007 kl. 10:30

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband