Post weekend

Afsakið bloggleysið! Hér með kemur ein stutt færsla, einfaldlega vegna þess að vinur minn situr hérna hliðina á mér og er að glugga í séð og heyrt. Ég hef grun um að hann skilji ekki orð af því sem hann er að lesa en það má alltaf geta í glufurnar. 

Annars er allt gott að frétta. Átti góða helgi sem innihélt göngutúra með hunda; Buffy og Berlious, dulitla bjórdrykkju (alls ekki mikið á íslenskum mælikvarða) og svo eldaði ég. Ég ákvað á laugardeginum að það væri komið að mér að elda....skundaði útí búð til að kaupa innhaldsefnin. Það reyndist þrCritical Massautinni þyngri í ljósi þess að allt sem ég var að lesa var á ensku og það sem þurfti að kaupa var á ungversku, það tókst.  Af einhverjum ástæðum fékk ég svo stresskast, því var eytt snarlega þegar Gábor dró mig með í Critical mass sem er eins og bílalausi dagurinn heima nema hér er götum lokað og fólk hjólar einhver ósköp. Stressið fauk út um gluggan og ég var sæl og rjóð.

Matargerðin tókst stórkostlega enda var ég með tvo mjög góða hjálparkokka. Á boðstólnum var dýrindispæella...nammnamm! 

Þannig í heildina var helgina mín frábær sem er mjög gott þar sem næsta fer í væntanlega í lærdóm fyrir anatómíupróf sem fer fram klukkan sjö á mánudagsmorgunn og stendur yfir í 18 mínútur......hver planar svona? 


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 identicon

Hæ skvís!
Ég sit bara hér í spenningskasti yfir því að hún íris litla þykist vera að eignast barn !! mér finnst þetta nú einum of... að gera þetta á meðan við erum í útlöndum - en það var ekki mikið annað í stöðunni!    ahh!! nú er ég að fríka út á upphrópunarmerkjum!!! 

Hvernig segir maður Gábor ?

Koddu á msn áður en þú dýfir þér í lestur fyrir 18 mínútna prófið ! 

Hafðu það gott sætust

Ps. ertu til í að leyfa myndunum að vera aðeins stærri næst á facebook svo maður sjá fólkið ;) og hundana ! 

Anna Rúna (IP-tala skráð) 25.9.2007 kl. 21:28

2 identicon

Jey, gaman að fá blogg!

18 mínútna próf klukkan sjö?!?! á mánudagsmorgni?! það ættu að vera lög gegn þessu! 

Ragnhildur Bjarnadottir (IP-tala skráð) 26.9.2007 kl. 12:13

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband