Ekki búast við blogggleði

Ég er í neikvæðiskasti þessi dagana. Labba um með fýlusvip og nenni helst ekki að tala við mann og annan. Mér finnst ég ekki læra nóg en samt finnst mér ég alltaf sitja við skrifborðið mitt og alltaf vera með krampa í kálfanum því ég sit svo kjánalega. Kannski er leki einhversstaðar og það sem ég les eða það sem er sagt í tímum lekur einhversstaðar út og nær þannig að flýja þetta nöturlega heilabúa.

Það voru rúmlega 70% sem fengu núll í anatómíu II prófinu. Ég var ein af þeim....því ég gat ekki fyrstu spurninguna. Og af öllu prófinu þá var ég með fyrstu spurninguna ranga og kannski þrjár í viðbót, eða fjórar. En það er enginn miskunn hjá Magnúsi þegar hann er í Búdapest. 

Ég verð að fá heillastjörnu í heimsókn fyrir næstu viku. Það eru tvö próf og ég hef á tilfinningunni að ég hafi aldrei heyrt það sem um er að ræða áður. Vonandi er þetta ímyndun......en ég hef grun um annað.

Hlakka til að fá mér nýja tölvu....mín er fáránlega hávær og það er eins og hún ætli að láta lífið innan skamms. Það suðar og nuðar þegar hún vakir. Ég hef grun um að þetta sé viftan og ég hef ákveðið að kenna ákveðnum manni um þennan krankleika sem hrjáir tölvuna.

 

 


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 identicon

Þú færð heillastjörnu í heimsókn bráðum :)

Gangi þér vel í prófunum tveimur.

P.s. Ég þurfti að reikna summuna af sjö og fjórtán til að koma þessari athugasemd á framfæri. Mér finnst það til of mikils að ætla af heiladauðum einstaklingi. 

Bó (IP-tala skráð) 24.10.2007 kl. 23:55

2 identicon

Sæl ljúfa, koma svo, þú hefur nú gengið í gegnum ýmislegt og ekki látið hafa áhrif á þig. Njóttu þess að vera loksins í náminu sem þig dreymdi um að komast í. Það er ástæða fyrir því að þeir tóku þig inn í þennan blessaða skóla og það er ekki af því að þú ert sæt. knús til þín frá mér og dóttur minni henni Ragnheiði.

Sólveig (IP-tala skráð) 25.10.2007 kl. 11:27

3 identicon

það er samt ekki leiðinlegt að vera sæt. og þú ert mjög sæt. og svo ert líka skemmtileg.

hans (IP-tala skráð) 25.10.2007 kl. 13:56

4 identicon

I feel you pain!

Maja (IP-tala skráð) 25.10.2007 kl. 17:53

5 Smámynd: katrín atladóttir

þú átt eftir að spjara þig

ég hef fulla trú á þér! 

katrín atladóttir, 26.10.2007 kl. 12:56

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband