19.11.2007 | 23:17
Samfélag
Ég gerði mér grein fyrir því ekki alls fyrir löngu að nú tilheyri ég pínulitlu samfélagi. Svona eins og smábæir útá landi eru. Og í litlum samfélögum þá talar fólk og það talar helst hvort um annað; hvað hinn eða þessi gerði þennan eða hinn daginn. Hvort þessi sé virkilega aftur farinn að fá sér í glas og hvort kerlingin sé enn og aftur farin að halda framhjá kallinum sínum. Þannig er það að einhverju leiti hér. Við þekkjum engan utan við skólann og við fylgjumst ekki með fréttunum (ekki af viti) og þær fréttir sem við fylgjust með eru þá væntanlega frá heimalandinu. Þannig er það stórmerkur atburður ef einhver prumpar í tíma, verður of fullur, kyssir þennan frá Kanada eða hvað svo sem það er. Bros framan í kennara og daginn eftir er sá (oftast sú) hin sama að reyna að komast í brókina hjá honum til að ná prófinu.
Heima er þetta öðruvísi. Þá á maður sína skólavini og svo vini utan skólans. Þannig fær maður einstaka sinnum pásu frá skólanum og fólkinu sem honum fylgir og getur gleymt sér í einhverju allt öðru. Talað um eitthvað annað en komandi próf eða samnemendur. Ekki misskilja mig.....ég er ekkert vansæl en ég fór að hugsa um þetta áðan. Það er slúðrar fram í fingurgóma. Fólk brosir framan í samnemendur sína og um leið og sá hinn sami snýr sér við er ný saga spunnin upp. Ég er ekki að segja að ég taki ekki þátt í þessu, en ég hef ekki svo gaman að því. Mig langar helst að tala um eitthvað annað en eilíflega um samnemendur mína enda eru margir sem ekki ætti að eyða orðum um eða á.
Hugsanlega er þetta aðeins ýkt hjá mér en svona í grófum dráttum þá á þetta við. Það er sumsé smábæjarfílingur í stórborginni. Ég hef aldrei verið mikið fyrir að tipla á tánum í kringum fólk og ég hafði ekki hugsað mér að byrja á því hér. Þannig ætla ég að brynja mig við öllum slúðursögum sem hugsanlega gætu spunnist um mig og vinsamlega benda fólki á að ég hafi sem minnstan áhuga á að heyra þær.
Gott plan er það ekki?
Athugasemdir
Hæhæ, takk fyrir kveðjurnar. :o) Það væri svosem margt vitlausara en að kalla saman gamla hópinn við tækifæri.
Þú biður kannski að heilsa henni Önnu frá mér...
/Hulda
Hulda (IP-tala skráð) 20.11.2007 kl. 18:34
Skila því :)
Hvað segiru ertu farin að blikka einhvern kennara, kyssa Kanadabúa eða Íra, fyrir utan að hafa fengið þér helst til mikið í tánna á prominu?? :)
Ég er að reyna að mana mig upp í að halda partý hérna - í von um smá krydd í tilveruna :)
Anna Rúna (IP-tala skráð) 21.11.2007 kl. 14:50
ÉG geri ekki mikið af því að blikka kennara; þeir eru flestir með bumbu eða skalla. Írarnir er óskiljanlegir og kanadabúinn líkist Will Ferrell í Blades of Glory! Við skulum láta hitt liggja milli hluta!
inam (IP-tala skráð) 21.11.2007 kl. 16:22
Þú ýtir á mig þannig að ég ýti á þig :) Farðu nú að segja eitthvað skemmtilegt kona. Annars eru ekki nema 25 dagar þangað til að þú mætir á klakann. Er búin að taka 22 des frá fyrir jólaglögg og svo má ekki gleyma jóladags spilamennsku :) Guð hvað ég hlakka til....
Íris (IP-tala skráð) 24.11.2007 kl. 17:56
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.