.....

Vaknaði klukkan sjö í morgunn, bjó mér til rótsterkt kaffi, drakk það og reykti sígarettu. Setti hárið í hnút á miðjan hnakkan, setti á mig maskara og smá kinnalit, fór í falleg brún stígvél. Fór út. Gleymdi að minnast á að ég tók nokkrar öndunaræfingar eftir kaffidrykkjuna.

Hitti Fridu og Annie fyrir utan skólann og í sameiningu löbbuðum við til Erell. Töluðum um anatómíu og sötruðum gin og tónik með læm og reyktum sígarettur. Korter í tíu þurfti ég að pissa og tíu mín í tíu fórum við í fyrsta alvarlega munnlega/verklega prófið af mörgu.  Pissuðum í kór fjórum mínútum fyrir prófið og héldum svo inní disecting room með dúndrandi hjartslátt sem hefði eflaust verið meiri hefðum við ekki fengið okkur ginið og tonikið. 

Kláraði prófið á ca. 40 mínútum og kennarinn hlustaði ekki einu sinni á mig þegar ég benti og talaði um vöðvana titrandi röddu. Horfði ekki á mig þegar hann sagði: "Þú ert hér, færð fimm, til hamingju". Svo labbaði hann í burtu og ég gerði slíkt hið sama, hæst ánægð með árangurinn en dáldið svekkt fyrir að hafa fengið svona auðavelt efni að leysa.....en þakklát þó.

Drakk tvo bjóra og labbaði svo heim. Útað borða í kvöld en læra þangað til; it aint over till the fat lady sings...

ps. Fimm er hæsta einkunn hérna.....bara þannig þið vitið það! 

  


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 identicon

til hammara!

hans (IP-tala skráð) 13.12.2007 kl. 14:53

2 identicon

Reyktirðu sígarettu? Hvað varð um tyggjóið? Annars gó inam

Díana (IP-tala skráð) 14.12.2007 kl. 10:35

3 identicon

Til hamingju

En vá hvað það er hardcore að fá sér gin og tónik að morgni til oog fyrir próf! 

ragnhildur (IP-tala skráð) 14.12.2007 kl. 10:42

4 identicon

iiii, til hamingju.

Bó (IP-tala skráð) 14.12.2007 kl. 11:35

5 identicon

Díana: Ég féll af nonesmokingwagon; reyndar hoppaði ég eiginlega af. Var farið að fara í taugarnar á mér að fara alltaf í apótekið. Svo er náttla svo kúl að reykja, jú nó!

Ragga: Við erum hardcore....

Bó: danke! 

inam (IP-tala skráð) 14.12.2007 kl. 12:07

6 identicon

til hamingju! kannski að ég prófi þessa taktík á mínu anatómíu prófi í jan

maja (IP-tala skráð) 14.12.2007 kl. 23:07

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband