19.10.2005 | 08:43
nei detti mér nú allar dauðar lýs úr höfði
á ég að fara að koma með þvagsýni í efnafræði til þess að efnagreina það! Og hvað á ég svo að pissa í, vissi ekki að pissusýnisglas væri nauðsyn á hverju heimili! Er að spá í að sleppa því að pissa í poka og bjóða myndarlega efnafræðikennaranum að gerast sjálfboðaliði og bjóða mér pissið sitt! Þori að veðja að hann myndi roðna alveg niður í litlu tá þar sem hann er svo ammerískur eitthvað! "Shouldn't we go on a date before i start giving you my pi" Gamlar myndir eru verk djöflans.....oh hvað ég vildi að ég væri ennþá svona! Vitiði hvað ég, sjá mig á þessari mynd, vá hvað ég var flott þarna......svo kemur bömmer, smá niðurbrot á sjálfsáliti og maður sver að maður láti aldrei taka myndir af sér aftur! allt annað en hressandi vi ses
Breytt 16.4.2006 kl. 16:54 | Facebook
Athugasemdir
Þvagprufuglas má nú kaupa í næsta apóteki á vægu verði..og mér finnst þú vera gullfalleg, á myndum, en enn fremur in person.....skil ekki alveg þennan bömmer, vinan!
ragnhildur (IP-tala skráð) 19.10.2005 kl. 11:47
...og lyktin í tilraunastofunni verður ólýsanleg...
bylgja (IP-tala skráð) 28.10.2005 kl. 14:40
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Þú ert innskráð(ur) sem .
Innskráning