andsk...helv...djö

Ég var búin að skrifa einhverja mega sega færslu og ýtti á vista og vista og vista og þá fokkaðist internetið og ég var nærri búin að henda nýju tölvunni út um gluggan og það er engin leið að ég nenni að skrifa þessa færslu aftur!

 

Er sumsé í nettri fýlu...hún bráir af mér einhvern tímann með deginum

 


Spurning

Á ég eitthvað að halda áfram með þetta blessaða blogg?

Silfur

Brilljant! Algerlega brilljant. 'Eg atti samt sem adur mjog erfitt med ad horfa a tennan leik.

1. Var ad reyna ad latast kul, tar sem pabbi sat i tolvunni....var ad springa.

2. Skil ekki alveg handbolta...ma semsagt yta?

3. Vard pirrud tegar frakkar skorudu, serstaklega ef tad var gat i vorninni og enn pirradri tegar island skaut i tessar fjandan stangir.

4. Skil heldur ekki alveg hvenaer teir eru reknir utaf og hvenaer tad a ad vera viti, reyndi ad fylgjast med endursyningunni og vard engu naer.

 

Ef leikurinn hefdi verid 10 min lengur ta hefdud vid tekid tetta, eg er viss um tad tvi tegar lidid var a seinni halfleik ta komust teir i stud (Takid eftir tvi hvad eg tala mikid handboltamal i tessari faerslu).

Djofull var hann ogedslega godur franski markvordurinn, hoppandi og skoppandi eins og kanina og greip boltann eins og froskur gripur flugur, hann for ad fara soldid i taugarnar a mer ad vera alltaf ad verja svona.

Shiiii....Petterson er myndarlegastur i islenska lidinu. Hann verdur vaentanlega kosinn myndarlegasti madurinn a bylgjunni tar sem teir voru svona duglegir drengirnir. En annars var franska lidid med eindaemum myndarlegt....allir! Tessi med taglid....Gille og markahetjan Karabatic stodu virkilega uppur hvad myndarlegheit vardar og lika varnarboltinn sem eg veit ekki hvad heitir. Alltaf gaman ad horfa a sporttrottir og ta serstaklega ef tad er  myndarlegt folk sem er ad taka tatt.

Annars high ten fyrir Islenska landslidin! Ofur fint hja teim.


Handbolti

Storfrettir, eg aetla ad vakna a sunnudaginn i london og eg aetla mer ad horfa a urslitaleikinn i boltaitrott. Eg hugsa ad eg muni lika kannski hoppa uppur sofanum og oskra sma ef leikurinn bydur upp a tad. Djofull er gaman ad vera islendingur tegar tad gengur vel (jafnvel to unnar eda whats his face se osammala tvi ad eg se islendingur).

Sumarið

Senn á enda og því við hæfi að skella saman í smá annál.

Ég gerði mjög mörg plön meðan ég átti að vera læra undir próf í vor; mér tókst að standa við ca. ....eitt!

Ég ætlaði að fara í útilegu sem er samt sjálfsblekking ofaná sjálfsblekkingu í ljósi þess að mér finnst ekkert spennandi að sofa í tjaldi, ég ætlaði að fara útúr bænum en hvað get ég sagt; ég er bæjarrotta af guðsnáð og það var eitthvað meira sem ég ætlaði mér að gera en ég get með engu móti munað hvað það var.

Mér tókst hinsvegar að vinna vel og mikið og hafa gaman að á hverjum einasta degi, að ofgera lifrinni í mér um hverja einustu helgi en ná samt að halda ágætis þoli með skokki og sundi og einstaka capoeiraæfingum á virkum dögum. Ég náði þeim stórkostlega árangri að verða fræg með því að fá mynd og örviðtal við mig í fréttablaðinu (vonbiðlum hefur þó ekki fjölgað af einhverjum ástæðum). Það bættist líka töluvert í vinahópinn minn á feisbúkk sem verður að teljast árangur. 

Það sem stóð hæst uppúr sumrinu var Þingvallarferðin um verslunarmannahelgina. Föstudagurinn fór í að ferja hestana upp á Þingvöll. Beint eftir vinnu skunduðum við afstað, lögðum á og riðum af stað, uppúr 12 á miðnætti vorum við að lenda á Skógarhólum og ég var pínu...bara pínu úrill af þreytu. Dagurinn eftir var án efa sá besti sumarsins, riðum þjóðgarðinn í bongóblíðu, svo mikil var sólin að ég var á hlýrabol. Eftir reiðtúrinn borðaði ég góðan mat með besta fólki í heimi, drakk gott vín sem leiddi svo af sér endalausan söng um Lilla hákarl (ég var í lífshættu það kvöld þar sem Hans Orri var við það að skera mig á háls með lykli).

Annað gott atvik frá sumri var þegar brósi bró kom til landsins og hélt afskaplega gott partý. Það kvöldið voru fjórmenningarnir sameinaðir; Hansel, brósi bró, Lygi og hin einstaka ég. Við stigum hermannadans á stofugólfinu heima við mikinn fögnuð viðstaddra. Hans var sárt saknað á Gay Pride og verður fluttur inn fyrir það næsta sumar.

Missionið sem ég hafði sett mér og náði var að labba á Esjuna. Skammarlegt að segja frá því að þetta var í fyrsta skipti sem ég labba á Esjuna en ó hvað það var fínt. Útsýnið þegar komið var á toppinn með nett blóðbragð í munninum og smá svima var alveg þess virði. Það var rosalega erfitt að labba upp þessa svaðalegu halla sem eru þarna og ég get svo svarið það að það var einhver sem var alltaf að bæta á fjallið þegar við Hans vorum að labba það (tröllskessa í góðum felubúning) því í hvert skipti sem ég leit upp af jörðinni var toppurinn lengra frá. En við komust á endanum. Á leiðinni niður tókst mér að misstíga mig þrisvar á ca. 20 mínútum en vinstri ökklinn slapp að mestu við bólgur, sá hægri kvartar smá. Í dag er ég svo með harðsperrur og það bærast með mér tvenns konar tilfinngingar þegar ég er með harðsperrur; annars vegar finnst mér gott að vera með harðsperru því það þýðir að ég hafi verið að reyna á, hins vegar finnst mér ég ekki í nógu góðu formi að fá harðsperrur eftir göngutúr en það verður unnið í því frá og með mánudeginum 25. ágúst þegar ég verð komin aftur til búdapest, byrjað að æfa capoeira að krafti.

Gott sumar og ég er nú þegar byrjuð að plana næsta.

Plan 1: Ganga fimmvörðuháls með teipaðar fætur! 


Sokkar

Besta í heimi er að fara í splunkunýja sokka. Ef ég ætti allan pening í heiminum þá myndi ég kaupa mér nýja sokka á hverjum degi og dunda mér við að renna þeim upp á fótinn. Það er nefnilega þannig að þegar maður er búinn að þvo þá einu sinni þá er þetta góða nýjabrum farið af þeim. Ég fæ alveg netta fullnægingu þegar ég fer í nýja sokka, þeir eru svo mjúúúkir. 

Tveir þumlar upp fyrir nýjum sokkum, jibbí jei! 

 


Atómstöðin

Er asnalegasta hljómsveit í heimi, greinilegt að þeir eru svo lélegir að þeir þurfa að nota gamla Helga atvinnumótmælara til að auglýsa sjálfan sig. Aumkunarvert. Þeir voru í sjónvarpinu og hún þarna stelpa spurði hvort þeir væru að þessu í auglýsingaskyni: "Nei, auðvitað ekki".  Svo talaði hún við Helga sem gaf skít í músíkina og ég skil hann vel. Einhver gaur að nálgast gráa fiðringinn að öskra í míkrafón og unglingar með sítt hár að slamma og glamra á gítar í sameiningu að koma einhverjum skilaboðum ásamt Helga atvinnumótmælara....hvern eru þeir að reyna að plata.

Draumur

Furðulegasti draumur:

Ég var bomm (það er ekki kannski ekki furða að manni dreymi það í ljósi þess að önnur hver stúlka er ólétt og maður rekst í bumbur hvar sem er). Ég var í mat í vinnunni og af einhverjum ástæðum var ég á línuskautum (ég kann ekki á línuskauta, kann ekki að stoppa) og ég var í tómu tjóni því ég gat ekki stoppað og var alltaf að detta á rassinn eða grípa í ljósastaura. Svo þurfti ég að fara upp ótrúlega bratta brekku og var alltaf að hafa áhyggjur af tímanum því ég átti bara klukkutíma í mat og þurfti að komast upp brekkuna og snúa svo við á einhverjum punkti til að komast til baka í tæka tíð. Ástæðan fyrir því að ég var á línuskautum var sú að mig langaði að halda mér í formi þrátt fyrir bumbuna.

Svo hitti ég Írisi sem ljómaði af hamingju yfir þessari nýkomnu bumbu ólíkt mér. Hún spurði hvursu langt ég væri gengin og það var fyrsta panikkið því ég var ekki viss, svo giskaði ég á ca. 4 mánuði. Panikk tvö var hvort ég næði ekki að klára prófin áður en beibíið kæmi, ég komst að því að það var von á því í lok desember þannig ég átti góðan möguleika á að klára prófin áður en beibí kæmi.  Á meðan á þessum vangaveltum stóð var ég ennþá að stressast yfir því að komast ekki í vinnuna á réttum tíma. Panikk tvö var þegar ég var að halda á einhverju annarra manna barni og ég var alltaf við það að missa það því ég þurfti líka að fóta mig á línuskautunum. Þar með fór ég að gráta því ég var ekki viss um að mig langaði til þess að verða mamma og ég gæti ekkert í því gert og þar sem ég gæti ekkert í því gert þá yrði ég ömurlega mamma og ég hata að vera ömurleg í einhverju.

 Maaan, hvað ég var þreytt þegar ég vaknaði. Það er ekki að fara að gerast að ég sé að fara að verða ólétt í bráð. Ef það er þreytandi í draumi þá má það vera helmingi meira í lifandi lífi.

 

Er einhver sem getur ráðið þennan draum? Bannað að bullshitta! 


Fríkeypis

Ég hata hata hata af öllu hjarta þessa "skítt með kerfið" auglýsingu vodafone. Hún fer það svaðalega í taugarnar á mér að ég íhuga alltaf að skipta yfir í annað símafyrirtæki þegar hún birtist á skjánum.

Gott partý hjá brósa bró í gær. Bjórdæla með meiru og gott fólk. Mér tókst að sjálfsögðu að misstíga mig þegar við vorum að labba niður í bæ, týpiskt og pirrandi. En eftir vodka í vatn þá var ég hætt að spá í því (paying the price í dag). Fórum á Boston (allt í lag staður...veit ekki alveg), Kaffibarinn þar sem var pakkað eins og fyrri daginn, en það er alltaf hressandi að fara þangað og hitta fólk sem maður hefur ekki séð lengi og síðast fórum við á Qbar og þar er alltaf stuuð.

Talaði við myndarlegan mann og týndi honum svo og get ómögulega munað hvað hann heitir. Sem er alveg týpískt; ég kinka ört kolli en nafnið fer yfirleitt ofan garðs og neðan. En hann á stóran hund og á hesta og heitir........man ekki! 

Elska Top gear. Ætla að hætta að skrifa og einbeita mér að þessu. 


Dammdamm

Brósi bró er að koma í heimsókn á fimmtudag og ætlar að vera í smá tíma....ííííjah! Flottustu systkini bæjarins sameinuð...hafið varann á allir saman! Það má eiga von á að sjá okkur syngjandi í Laugaveginum einhverjar ballöður og hver veit nema við stígum arabadans á skemmtistöðum bæjarins.

Ég tók ofurskokktúr áðan, skokkaði heiman frá mér og sæbrautina að ikea og hagkaup og skokkaði svo uppí eitthvað hverfi sem ég veit ekki hvað heitir og kom niður hjá glæsibæ og skokkaði heim....vá hvað það var næs fyrir utan að ég fékk ansi illt í ökklann eftir að skokka á malbikinu.  Kom svo heim í sterka mexíkósúpu og er að springa núna. Fjúff....en amm hvað hún var góð.

Var með litla chihuahua tík um helgina sem hafði týnst frá eiganda sínum. Yfirleitt finnst mér þessir hundar ekkert voðalega skemmtilegir en þessi  var alger lúsarmús og virkilega skemmtileg. Auk þess tókst mér að fara á eyrnasneplana á laugardeginum. "Note to self; Too many G&T makes you shitfaced".  Þannig sunnudeginum var eytt að mestu í svefn með lúsarmúsina í hálsarkoti (það var heima hjá hans orra umkringd Lyga, Sissa, Katrínu og Hansa, sem nóta bene voru ekki sofandi). 

Og nú ætla ég að horfa á snilldarsjónvarpsefni; Age of love! Mjög gefandi og skapandi þáttur.....buuuuulllllshitt! Heilafrumudrepandi án efa...en ég er hvort eð með of margar! 


« Fyrri síða | Næsta síða »

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband